Tarotmiðlun

sigrún

Sigrún hefur lagt stund á lestur tarot spila í tæp 30 ár. Hún hefur lokið 2 námskeiðum hér á landi og einu miðlunarnámskeiði í Arthur Findley College í Bretlandi. Jafnframt var hún nokkur ár í þróunar hring hjá Sálarrannsóknarfélagi Ísland. Hún hefur því víðferma reynslu á bakinu.

Hin síðari ár hefur hún svo sjálf haldið námskeið fyrir byrjendur i Tarotfræðunum. Námskeiðin hafa hlotið mikið lof nemendanna og allir farið ánægðir heim.

Flestir sem koma í lestur segja að það sé merkilegt hvað spilin geti kortlagt líf þeirra vel og hjálpað meðal annars við erfiðar ákvarðanir, horfast í augu við eigin veikleika og einnig styrkleika.

Hún tekur á móti fólki í lestur alla daga vikunnar. Hægt er að panta tíma með því að senda póst á boka@tarotlestur.is